AUGLÝST EFTIR UMSÓKNUM Í SJÓÐINN

Listskreytingasjóður ríkisins auglýsir eftir umsóknum um styrki
úr sjóðnum árið 2011.
Umsóknareyðublað og allar nánari upplýsingar er að finna á
heimasíðu sjóðsins: www.listskreytingasjodur.is og í síma 551 1346 551 1346 .

Umsóknarfrestur er til 1. mars 2011.                        
                                          
                       
                                         Nýtt myndlistarverk.

Sköpun Lands eftir Magnús Pálsson, hefur verið sett upp á vegg í anddyri Öskju, náttúrufræðahúss Háskóla Íslands.Verkið fjallar um myndun lands og sköpun heims í umfjöllun Jónasar Hallgrímssonar og höfundar Völuspár. Verkið er gríðarstórt eða um 11 metra hátt og 3.30 metrar á breidd og gert úr handskornum flísum, 38x38 mm stórum en 10 mm að þykkt, samtals um 17 þúsund flísum. Flísarnar eru úr sama granítbergi og gólf hússins sjálfs, en bygginguna hannaði Dr Maggi Jónsson arkitekt. Verkið er kostað af Listasafni Háskóla Íslands og Listskreytingasjóði ríkisins. Sköpun lands eftir Magnús Pálsson myndlistarmann á vegg í anddyri Öskju, náttúrufræðahúss Háskóla Íslands, verkið var vígt þriðjudaginn 1. desember í Öskju við hátíðlega athöfn.
 

     

                                                   
Á veggnum birtast í flísalögn þrjú erindi úr 13. aldar kvæðinu Völuspá úr Snorra-Eddu sem fjallar um sköpun heims og endalok jarðar og fimm erindi úr ljóðinu Fjallið Skjaldbreiður sem Jónas Hallgrímsson orti árið 1841 og eru erindin ýmist brennd á flísar eða skrifuð í blautan múr. Pétur Magnússon stjórnaði uppsetningu verksins fyrir hönd myndlistarmannsins, Magnúsar Pálssonar, en Jón Pétur Ólafsson sá um flísunina. Guðmundur Oddgeir Indriðason prentaði á og brenndi leturflísar. 
                                       

  

Ný aðföng

Listskreytingasjóður veitti Landspítala háskólasjúkrahús, Geðsvið við Hringbraut fyrir árið 2008.
Keypt voru verk eftir Arngunni Ýr Gylfadóttir, Sólveigu Aðalsteinsdóttur og Bjargeyju Ólafsdóttur
 
 
Arngunnur Ýr Gylfadóttir, 
Bliss, 2008 stærð 152 x 125 cm

 
Bjargey Ólafsdóttir,
Draumafjöll
, 2008 stærð 80 x 80 cm

 
Sólveig Aðalsteinsdóttir,
Köngulóarvefir, 2008 stærð 53 x 38 cm